Sunday 2 March 2008

S A N T A N A Tónleikar

Við fórum á frábæra Tónleika með Carlos Santana á Fimmtudagskvöldinu 28 Mars.. Hann var með frábæra félaga með sér. Tónleikarnir voru uppseldir, en ég keypti miða í Október þannig að við fengum sæti nálægt sviðinu. Tónleikarnir stóðu yfir sleitulaust í yfir tvo og hálfan tíma. Santana spilaði mörg af sínum frægustu lögum. Mikið stuð á fólki og undir lokin stóðu allir upp og dönsuðu. Ég tók upp nokkur vídeó á síman minn og klippti smá búta út úr saman sem má sjá og heyra hér fyrir ofan. Þetta var svakalega gaman..

1 comment:

Rafn Sig,- said...

Ekki hefði ég haft neitt á móti því að hafa verið á þessum tónleikum. Töfrandi tónlistarmaður. Ætla að skella mér á tónleika éð Eric Clapton í júlí og hlakka mikið til- Kveðja frá Íslandi