Blog for Family and Friends - Blog fyrir fjölskyldu og vini. Warning! This blog will mostly be in Australian!!..
Sunday, 25 May 2008
Simmi á Fullu í 4WD
Við skelltum okkur í útilegu yfir síðustu helgi. Við skruppum norður fyrir Sydney í skóg sem kallast Watagans. Þetta er aðeins í um klukkutíma keyrslu á staðin þar sem skógurin byrjar. Við fórum á laugardags hádegi og komum aftur til baka á sunnudag síðdegis. Það var spáð rigningu, en hún lét ekki sjá sig. Glampandi sól og 20 stiga hiti. Sibba tók þetta vídeó af mér. Það sýnir svona hvernig þessir vegir í skóginum eru. Þeir geta verið annsi missjafnir. Þessi er nokuð góður. Það eru margir afleggjarar og auðvelt að villast. Þess vegna erum við með GPS og kort til að við villumst ekki. Frábær ferð og trukkurinn stóð sig vel.
Thursday, 1 May 2008
Ferðalag í Apríl
Sunday, 20 April 2008
Nýr Fjölskyldumeðlimur
Jæja, loksins létum við verða af því og keyptum okkur Landcruiser. Þetta er árgerð 1994, DX gerð með 4.2 lítra dísel vél. Hörku trukkur sem hefur verið keyrður um 200,000 kílómetra og á langt eftir. Mjög vel með farin og hefur greinilega átt heima á malbiki mestalla sína æfi. Við erum núna að skipuleggja ferð yfir langa helgi. Er ætlunin að fara og gista yfir nótt í tjaldi. Við fórum í dag og keyrðum aðeins út fyrir Sydney, svona rétt til þess að geta farið af malbikinu sem er hér út um allt. Við keyrðum áleiðis inn í skógin hérna fyrir norðvestan. Trukkurin stóð sig eins og hetja og rúllaði upp veginu, enda ekki svo slæmur. En það var annsi hállt því að það ringdi öðru hvoru. það var gott að komast út úr bænum og út í náttúruna. Við sátum úti í skóginum og fengum okkur nesti. Það voru engin borgarhljóð, aðeins hljóð í dýrum og trjám. Við sáum svo kengúrur hlaupa um á leiðinni til baka. Á leiðinni í bæin stoppuðum við hjá Lillý og Lúlla og fengum tebolla. Alltaf gaman að heimsækja þau.
Heimsókn í Mars
Í Mars komu Hafdís og Sigurjón í heimsókn. Þau voru hérna hjá okkur á meðan þau skoðuð sig um í Sydney. Við fórum líka um helgina upp í Hunter Valley til að kanna vínuppskeruna, ásamt því að fara upp í Bláfjöll. Þau fengu besta sumarveðrið sem komið hefur í ár. Sólskin og blíða uppá hvern dag. Byrjaði að rigna um leið og þau fóru. Ég hef verið að ganga með þá hugmynd að kaupa mér Jéppa í langan tíma. Ég dróg Sigurjón með mér á nokkrar bílasölur og var það annsi gaman. Tveir góðir íslendingar að pæla í Landcruiser. Eftir að þau fóru, fór ég með Sibbu og Lindu með mér. Alltaf betra að hafa einhverja með sér sem geta gefið álit á bílum.
Sunday, 2 March 2008
S A N T A N A Tónleikar
Við fórum á frábæra Tónleika með Carlos Santana á Fimmtudagskvöldinu 28 Mars.. Hann var með frábæra félaga með sér. Tónleikarnir voru uppseldir, en ég keypti miða í Október þannig að við fengum sæti nálægt sviðinu. Tónleikarnir stóðu yfir sleitulaust í yfir tvo og hálfan tíma. Santana spilaði mörg af sínum frægustu lögum. Mikið stuð á fólki og undir lokin stóðu allir upp og dönsuðu. Ég tók upp nokkur vídeó á síman minn og klippti smá búta út úr saman sem má sjá og heyra hér fyrir ofan. Þetta var svakalega gaman..
Sunday, 20 January 2008
Mæðgurnar mættar..
Þær komu loksins til Sydney þann 5ta Janúar um morguning. Aðeins sólarhrings seinkun vegna þess að frakkarnir sem áttu að afísa vélina í parís, misstu ranann út út höndunum á sér og gerðu gat á vélina. Allt í steik, allir á hótel og svo ekki flogið fyrr en dagin eftir. Þær skiluðu sér samt í Sydney með farangurin. Ekki teknar í tollinum. Við brunuðum svo heim með þær til að þær gætu slappað af og við tekið af þeim konfekt, lakkrís og harðfisk. ha ha ha.. Þær eru allavega búnar að jafna sig eftir flugið og hafa gert það bara gott í hinum ýmsu stórmörkuðum..
Nýárskvöld í Sydney

Loksins! Ég vann miða sem gaf okkur tækifæri á að vera á einum besta staðnum í bænum til að horfa á flugeldanna.. Við fengum miða á báðar flugeldasýningarnar sem voru klukkan 9 og á miðnætti. Við mættum á staðin tímanlega og komum okkur fyrir með stóla. Við höfðum með okkur nesti. Flugeldarnir klukkan 9 eru fyrir fjölskyldur og standa yfir í um átta mínútur. Þeim er að mestu skotið upp af prömmum á höfninni. Flugelda sýninging á miðnætti stóð yfir í tólf mínotur. Þá er þeim skotið upp af prömmum á höfninni, byggingum báðum megin við brúnna og af brúnni sjálfri. Var þetta stórkostleg sýning, og sást vel þaðan sem við vorum. Eftir sýninguna tókum við lestina heim. Það var áætlað um ein milljón manns hefðu verið í bænum um kvöldið. Allavega höfðum við aldrei séð eins mikið af fólki flæða um stræti borgannar eftir miðnætti á leiðinni á lestarstöðina. All flestir annsi prúðbúnir og mikið um fjölskyldur með börn. Við komum svo heim um hálf tvö leitið. Frábært kvöld.
Subscribe to:
Posts (Atom)