- Dagur 1 - Sydney til Cobar - 677km
- Dagur 2 - Cobar til Peterborough - 737km
- Dagur 3 - Peterbourough til Roxby Downs - 384km
- Dagur 4 - Roxby Downs til Oodnadatta - 457km
- Dagur 5 - Oodnadatta
- Dagur 6 - Oodnadatta til Ayers Rock - 704km
- Dagur 7 - Ayers Rock/Olgas
- Dagur 8 - Ayers Rock/Olgas
- Dagur 9 - Ayers Rock til Kings Canyon - 301km
- Dagur 10 - Kings Canyon
- Dagur 11 - Kings Canyon til Coober Pedy - 745km
- Dagur 12 - Coober Pedy til Port Augusta - 537km
- Dagur 13 - Port Augusta - Broken Hill - 417km
- Dagur 14 - Broken Hill
- Dagur 15 - Broken Hill til Trangie - 677km
- Dagur 16 - Trangie til Sydney - 459km
Blog for Family and Friends - Blog fyrir fjölskyldu og vini. Warning! This blog will mostly be in Australian!!..
Friday, 4 July 2008
Sumarfrí Júlí 2008
Wednesday, 2 July 2008
Heimsokn fra Islandi
Vid fengum ovaenta heimsokn a sunnudegi fyrir rumri viku. A ferdinni voru Bergthora og madur hennar Thorsteinn fra islandi. Vid Bergthora unnum saman lengi vel hja IBM a Islandi. Thorstein var a radstefnu i Brisbane. Thau stoppudu orstutt i Sydney thannig ad vid nadum at bjoda theim i kaffi og med thvi nidri Darling Harbour. Frabaert ad fa folk i sunnudags kaffi alla leid fra islandi.Friday, 6 June 2008
Ben Vinnufelagi
Sunday, 25 May 2008
Simmi á Fullu í 4WD
Við skelltum okkur í útilegu yfir síðustu helgi. Við skruppum norður fyrir Sydney í skóg sem kallast Watagans. Þetta er aðeins í um klukkutíma keyrslu á staðin þar sem skógurin byrjar. Við fórum á laugardags hádegi og komum aftur til baka á sunnudag síðdegis. Það var spáð rigningu, en hún lét ekki sjá sig. Glampandi sól og 20 stiga hiti. Sibba tók þetta vídeó af mér. Það sýnir svona hvernig þessir vegir í skóginum eru. Þeir geta verið annsi missjafnir. Þessi er nokuð góður. Það eru margir afleggjarar og auðvelt að villast. Þess vegna erum við með GPS og kort til að við villumst ekki. Frábær ferð og trukkurinn stóð sig vel.
Thursday, 1 May 2008
Ferðalag í Apríl
Sunday, 20 April 2008
Nýr Fjölskyldumeðlimur
Jæja, loksins létum við verða af því og keyptum okkur Landcruiser. Þetta er árgerð 1994, DX gerð með 4.2 lítra dísel vél. Hörku trukkur sem hefur verið keyrður um 200,000 kílómetra og á langt eftir. Mjög vel með farin og hefur greinilega átt heima á malbiki mestalla sína æfi. Við erum núna að skipuleggja ferð yfir langa helgi. Er ætlunin að fara og gista yfir nótt í tjaldi. Við fórum í dag og keyrðum aðeins út fyrir Sydney, svona rétt til þess að geta farið af malbikinu sem er hér út um allt. Við keyrðum áleiðis inn í skógin hérna fyrir norðvestan. Trukkurin stóð sig eins og hetja og rúllaði upp veginu, enda ekki svo slæmur. En það var annsi hállt því að það ringdi öðru hvoru. það var gott að komast út úr bænum og út í náttúruna. Við sátum úti í skóginum og fengum okkur nesti. Það voru engin borgarhljóð, aðeins hljóð í dýrum og trjám. Við sáum svo kengúrur hlaupa um á leiðinni til baka. Á leiðinni í bæin stoppuðum við hjá Lillý og Lúlla og fengum tebolla. Alltaf gaman að heimsækja þau.
Heimsókn í Mars
Í Mars komu Hafdís og Sigurjón í heimsókn. Þau voru hérna hjá okkur á meðan þau skoðuð sig um í Sydney. Við fórum líka um helgina upp í Hunter Valley til að kanna vínuppskeruna, ásamt því að fara upp í Bláfjöll. Þau fengu besta sumarveðrið sem komið hefur í ár. Sólskin og blíða uppá hvern dag. Byrjaði að rigna um leið og þau fóru. Ég hef verið að ganga með þá hugmynd að kaupa mér Jéppa í langan tíma. Ég dróg Sigurjón með mér á nokkrar bílasölur og var það annsi gaman. Tveir góðir íslendingar að pæla í Landcruiser. Eftir að þau fóru, fór ég með Sibbu og Lindu með mér. Alltaf betra að hafa einhverja með sér sem geta gefið álit á bílum.
Subscribe to:
Posts (Atom)
